Öflugur kjarafundur var haldinn á vegum Landssambands eldri borgarar (LEB), mánudaginn 2. október kl. 13.00 - 16.00 fyrir troðfullu húsi á Hilton Reykjavík Nordica.
Alls fylgdust 4.493 manns með á streymi sem aðgengilegt var bæði á vef LEB og á visir.is Horfa má á ráðstefnuna hér: https://www.leb.is/vid-bidum-ekki-lengur/
Landssamband eldri borgara bendir á að um tuttugu þúsund manns lifa rétt við eða undir lágmarksmörkum og þola engar óvæntar uppákomur. Allar hækkanir á vöruverði og þjónustu bitna hart á þessum hópi, ekkert má fara úrskeiðis.
Kjör og aðstæður þeirra sem verst eru sett, eru hins vegar einu ríkasta samfélagi heims til skammar. Þetta er fólk sem hefur litlar sem engar lífeyristekjur, hefur alla tíð haft lítil laun, er að hluta til aðflutt og í miklum meirihluta konur
LEB leggur til sértækar aðgerðir fyrir þau verst settu:
Sérstakt skattþrep / Hækkun persónuafsláttar, – taki fyrst og fremst til lífeyristaka
Minni eða engar skerðingar hjá þeim sem eru undir viðurkenndu framfærsluviðmiði
Þau lægstu fái sérstakar greiðslur sem fjari út í hlutfalli við tekjur.
LEB leggur til almennar aðgerðir sem koma þeim best sem eru með lágar- og miðlungstekjur:
Hækkun frítekjumarks í 100.000 kr. Frítekjumarkið er 25 þúsund krónur og hefur ekki hækkað síðan í ársbyrjun 2017. Kæmi þeim best sem eru með lægstan lífeyri.
Ellilífeyrir verði aldrei lægri en lægsti kauptaxti. Hann er núna 315 þúsund, tæplega 90 þúsund undir lágmarkstaxta.
Árlegar hækkanir lífeyris og frítekjumarka fylgi launavísitölu.
Landssamband eldri borgara biðlar sérstaklega til verkalýðshreyfingarinnar um stuðning við fyrrum félaga sína í harðri kjarabaráttu.
Comentários