top of page

Kastljós 22. apríl 2024

Writer's picture: Bjartur lífsstíllBjartur lífsstíll

Þrjú mikilvæg málefni voru tekin fyrir í Kastljósinu mánudaginn 22.04.24:

1. Bæta kjör öryrkja, 2. Sálfræðiþjónusta og 3. Lyftingar á efri árum.



Liður 1: Félags-og vinnumarkaðsráðherra boðaði í dag umbyltingu á örorkulífeyriskerfinu. Samkvæmt því hækka lífeyrisgreiðslur 95 prósent öryrkja, örorkumat verður einfaldað og samræmt milli stofnana, frítekjumark hækkað og dregið úr tekjuskerðingu til að hvetja til atvinnuþátttöku. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður Öryrkjabandalagsins, segir að þetta sé sýnd veiði en ekki gefin. Þau Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra voru gestir Kastljóss.


Liður 2: Sálfræðiþjónusta hefur verið í boði á heilsugæslustöðvum í hartnær átta ár og gefist vel fyrir þá sem hana hafa fengið. Eftirspurnin er hins vegar langt umfram framboð og erfiðlega gengur að manna stöður. Dr. David Clark, prófessor við Oxford-háskóla, hefur tekið þátt í að innleiða sálfræðiþjónustu á heilsugæslustöðvar víða í Evrópu. Hann hélt vinnustofu á Íslandi á dögunum og Kastljós tók hann tali.


Liður 3: Ein áhrifaríkasta leiðin til að sporna gegn öldrun og fylgifiskum hennar er að lyfta þungum lóðum, segir Maria Fiatarone Singh, bandarískur öldrunarlæknir sem rannsakað hefur vöðvavernd hjá eldra fólki. Bergsteinn Sigurðsson, þáttastjórnandi Kastljóss, ræddi við hana og reif í lóðin með Elsu og Páli, lyftingaköppum á besta aldri.

25 views0 comments

Recent Posts

See All

Comments


Ábyrgðarmenn heimasíðu:
Verkefnastjórar heilsueflingar
Ásgerður Guðmundsdóttir LEB &
Margrét Regína Grétarsdóttir ÍSÍ
bjartlif@isi.is

 

leb logo.png
isi logo.png

Aðsetur: 
ÍSÍ Engjavegi 6, 4. hæð,
104 Reykjavík

 

bottom of page