top of page

Fyrsta keppni í götugöngu fyrir alla 60 ára og eldri

Þann 11. maí n.k. verður haldin fyrsta keppni í götugöngu sem farið hefur fram á Íslandi.

Keppnin er hugsuð fyrir alla 60 og eldri á Íslandi.

Leiðin sem verður gengin er 3.4km sem byrjar niðri í Breiðablik og gengið verður um Kópavogsdalinn.

Gaman væri ef sem flestir myndu koma og taka þátt. Ræst verður frá Breiðablik klukkan 15:00.


Keppt verður í fjórum aldursflokkum sem eru: 60-69 ára 70-79 ára 80-89 ára 90+


Gefin verða vegleg verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki fyrir sig.


Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi hreyfingar eldra fólks og hversu fjölbreytt heilsuefling er í boði víðsvegar um landið.


Gaman væri að sjá keppendur frá fjölda íþróttafélaga sem bjóða upp á hreyfingu fyrir þennan aldurshóp.

Slóð á skráningu er hér og er nauðsynlegt að allir sem eru 60 ára og eldri séu skráðir til leiks en ekkert þátttökugjald er í gönguna. https://netskraning.is/virkni-og-vellidan/


Hér er einnig slóð að viðburðinum. https://www.facebook.com/events/737307764754663/?ref=newsfeed

11 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page